Markmið þessarar blog-síðu er að ýta undir skemmtilega leiki í tengslum við arkitektúr, með menntun og fræðslu að leiðarljósi. Í athugasemdakerfi gefst gestum síðunnar kostur á að tjá skoðanir sínar og hugsanir, á skýran og skilmerkilegan hátt, þannig að til verði umræða á uppbyggilegum og jákvæðum nótum. Einnig eru gestir hvattir til að skissa lengra með myndir sem birtast á síðunni og senda ritstjóra sem hugsanlega birtir þær í kjölfarið. Njótið vel og gefið hugmyndafluginu lausan tauminn.

Sunday, May 27, 2007

Arkitektónísk getraun


Skoðanir og hugmyndir hefur verið nóg af síðustu daga. Aftur á móti hef ég ekki haft tíma til að varpa þeim fram hér á bloggið. Nú er nefnilega vertíð í arkitektaskólanum og skil nálgast óðfluga. Skólaverkefnið mitt hefur sína hugmynd. Ætla þó ekki að fara út í hana hér. Þess í stað mun ég birta klippimynd úr verkefninu sem gefur hugmynd um hvað verkefnið gengur út á. Lesendur fá því tækifæri á að spreyta sig í athugasemdakerfinu að neðan, koma með túlkun á myndinni og þannig glöggva sig á hvað verkefnið gengur út á. Verðlaun, ekki af verri endanum, eru veitt fyrir bestu túlkunina.

7 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Annað hvort sumarbústaðurinn - eða mýrarrauði í Vatnsmýri...

Náðirðu í Finn?

gamli

May 30, 2007 at 1:59:00 PM GMT+2

 
Blogger Bjarki Gunnar Halldórsson said...

Þú ert á réttri leið með mýrarrauðan en hann er ekki í Vatnsmýrinni. Hringi í Finn á eftir.

May 30, 2007 at 4:42:00 PM GMT+2

 
Anonymous Anonymous said...

Þetta er útsýnisturn/sumarbústaðurinn þinn sem gnæfir þarna yfir hverasvæðið í Hveragerði! ... heiðin er samt léleg, hvít og kassalaga.

klára þetta, fullteikna!!

June 3, 2007 at 12:31:00 AM GMT+2

 
Blogger Bjarki Gunnar Halldórsson said...

Skemmtileg tilraun hér á ferð hjá herra/frú anonymous. Þetta er þó hvergi nálægt Hveragerði eða kassalaga heiðinni. En halda áfram að reyna.

June 3, 2007 at 8:35:00 PM GMT+2

 
Blogger Bjarki Gunnar Halldórsson said...

This comment has been removed by the author.

June 4, 2007 at 9:17:00 AM GMT+2

 
Anonymous Anonymous said...

Mýrarrauði í Eldmýri - framtíðarlandinu þínu - í baksýn turninn á heimsenda hvar þú hyggst búa

gamli

June 4, 2007 at 3:35:00 PM GMT+2

 
Blogger Bjarki Gunnar Halldórsson said...

En ein góð tillaga lítur dagsins ljós en allt kemur fyrir ekki. Þetta er erfið þraut. Er eiginlega ekki alveg mýrarrauði í hefðbundnum skilningi. Hugsanlega er hægt að spá í hvernig mýrarrauði getur orðið til á annan hátt...

June 4, 2007 at 4:49:00 PM GMT+2

 

Post a Comment

<< Home