Markmið þessarar blog-síðu er að ýta undir skemmtilega leiki í tengslum við arkitektúr, með menntun og fræðslu að leiðarljósi. Í athugasemdakerfi gefst gestum síðunnar kostur á að tjá skoðanir sínar og hugsanir, á skýran og skilmerkilegan hátt, þannig að til verði umræða á uppbyggilegum og jákvæðum nótum. Einnig eru gestir hvattir til að skissa lengra með myndir sem birtast á síðunni og senda ritstjóra sem hugsanlega birtir þær í kjölfarið. Njótið vel og gefið hugmyndafluginu lausan tauminn.

Wednesday, December 05, 2007

Gjörningar og samsæri

Hef orðið var við ýmis undur á netheimum þessa dagana. Fyrst má nefna frétt um íslenskan listnema í Kanada sem var með vondan gjörning. Koma fyrir sprengjulíkani á almannafæri í nafni listarinnar er frekar naumt. Hvað varð um þessa listamenn sem unnu hörðum höndum við að móta fígúrur í gips, nú eða bara að mála Herðubreið? Gjörningalist getur verið áhugaverð en hún krefst gríðarlegrar vinnu og útsjónarsemi, eitthvað sem listnemin getur hugsað um í steininum. Stærsta gjörningalistin í þessu tilviki fælist líklegast í því að fá viðkomandi til að viðurkenna fyrir sjálfum sér og umheiminum að hann hefði hlaupið á sig.

Á vefritinu Deiglan.com er allt í einu sprottinn upp nokkurs konar gjörningarithöfundur (takið vel eftir hvernig ég endurhugsa orðið gjörning). Deiglupenni einn tók sig nefnilega til og tók heilt blog, í eigu Sóleyjar Tómasdóttur, úr samhengi. Eftir að hafa verið gagnrýndur í Lesbókinni svaraði hann þeirri grein til baka á þeim nótum að pistillinn hefði í raun ekki átt að vera málefnalegur, heldur var um háð að ræða, falið í vissu stílbrigði. Ennfremur er hann ósáttur við að karlkyns Sjálfstæðismenn séu dregnir í dilka, einungis út frá einni grein.

Líkt og listneminn á deiglupenninn í talsverðum vandræðum með að viðkenna mistök sín. Fyrir það fyrsta getur háð verið notað í málefnalegu samhengi og þá er hægt að ræða um áhugavert stílbrigði. Þarna var háðið þó gagngert notað til að gera lítið úr einni ákveðinni manneskju og í raun einelti á ferðinni. Það er heldur ekki rétt að segja að þetta komi Sjálfstæðismönnum ekkert við. Deiglan lætur jú greinina flakka eins og ekkert sé og enginn af pennum vefritsins gagnrýnir þessa döpru grein.

Út frá vissu sjónarhorni er þó hægt að færa rök fyrir að birting greinarinnar endurspeglu tjáningarfrelsi í hæstu hæðum og Deiglunni leiðist það nú ekki. Afur á móti áskilur hún sér rétt til að birta ekki allar athugasemdir sem birtar eru. Þó leyfir hún birtingu á frekar mannorðsmeiðandi athugasemdum í garð Sóleyjar. Svo er önnur spurning hvort greinin hefði verið birt rétt fyrir kosningar?

Að lokum ætla ég að henda í samsæriskenningu. Í byrjun sumars var skilafrestur í samkeppni um skipulag í Vatnsmýrinni. Um 140 tillögur bárast frá teiknistofum út um allan heim. Síðar í sumar byrjaði svo Iceland Express að þrýsta á skipulagsyfirvöld ríkis og borgar um að reisa flugstöð í Vatnsmýrinni. Samgöngumálaráðherra fannst það bara allt í lagi hugmynd og spáði ekkert í því að þaulmenntaðir arkitektar út um allan heim sýndu Vatnsmýrinni þennan áhuga.

Um daginn reyndi ég svo að grenslast fyrir um hvort von væri á niðurstöðum úr samkeppninni. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar var þó hvergi minnst á þessa samkeppni og heldur ekki á heimasíðu Arkitektafélags Íslands. Það er sem sagt nokkuð ljóst að samgöngumálaráðherra hefur tekist að hakka sig inn á þessa vefi, eytt út upplýsingum og þaggað keppnina niður. Eftir ca. ár munu Reykvíkingar svo uppgötva risastóra flugstöð, handan við risastóru Hringbrautina. Forstjórastaða hjá flugfélaginu verður svo nýr bankastjórastóll fyrir samgöngumálaráðherrann.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Mig minnir að samkeppninni hafi verið frestað ótímabundið en ég man ekki hver ástæðan var? Hvernig er annars staða mála núna og eru einhver drög að heildarskipulagi fyrir svæðið sem liggja fyrir? Hvaða skilmálar lágu til að mynda fyrir í samkeppninni um skipulag á svæðinu? Ég vona bara að eitthvað jákvætt fari að gerast í þessum málum og þá helst að þarna verði skipulögð þétt íbúabyggð þar sem mið er tekið af evrópskum stórborgum og því mannlífi sem þar er að finna frekar en bandarískum bílaborgum.

December 12, 2007 at 9:34:00 PM GMT+1

 
Anonymous Anonymous said...

Ég var að sjá heimasíðu samkeppninnar, vatnsmyri.is, en þar segir að endanleg niðurstaða ætti að vera kynnt í nóvember 2007. Hins vegar eru engar uppfærslur á síðunni og ekkert talað um að keppninni hafi verið frestað eða neitt slíkt. Þetta er eitthvað svakalegt samsæri.

December 12, 2007 at 9:51:00 PM GMT+1

 
Blogger Bjarki Gunnar Halldórsson said...

Já. Annað sem er athyglisvert er að í samkeppninni var hægt að skila inn þar sem flugvöllurinn var áfram og skipuleggja svæðið út frá því, það var sem sagt ekki skilda ad láta völlinn fara. Svo kannski mun vinningstillagan, ef ekki er búið að þagga keppnina niður, innihalda stóra flugstöð?

December 17, 2007 at 6:37:00 PM GMT+1

 

Post a Comment

<< Home